Fara í vörulýsingu
1 af 1

My Store

Marc Inbane Hyaluronic Luxury Beauty Gjafasett

Marc Inbane Hyaluronic Luxury Beauty Gjafasett

Venjulegt verð 9.500 ISK
Venjulegt verð Sölu verð 9.500 ISK
Útsala Uppselt
Skattur innifalinn

Lúxus gjafasett fyrir fallega brúnku. Í settinu er Hyaluronic brúnkusprey 100 ml og það fylgir frítt með Marc Inbane Powder Brush.

Hyaluronic brúnkusprey - fyrsta brúnkuspreyið sem inniheldur þriðju kynslóðar hýalúronsýru sem hjálpar húðfrumum þínum að drekka í sig og viðhalda raka, viðheldur þéttleika og teygjanleika og stuðlar að heilbrigði húðar. Hyaluronic spreyið er rakagefandi og mýkjandi og gefur fallegan ljóma. 

Hyaluronic brúnkuspreyið örvar kollagen framleiðslu húðar sem gerir hana frísklega og sléttari. Nærandi og mjúk formúla án alkohóls sem inniheldur Arlasolve™ sem gerir það að verkum að spreyið dreifist vel, þornar hratt og aðlagast fallega að þínum náttúrulega húðlit. Einn brúsi dugir í allt að 30 skipti á andlit og allt að 5 skipti á allan líkamann. Falleg brúnka á innan við mínútu sem endist í allt að 9 daga. Hentar öllum húðgerðum og passar í handfarangur! Hyaluronic spreyið gerir húðina ekki appelsínugula. Ilmurinn er sætur með blóma- og amber nótum. 

  • Án parabena og sílíkona. 
  • Prófað af húðlæknum.
  • Vegan og náttúruleg innihaldsefni. 
  • Eco-friendly brúsinn er að fullu endurvinnanlegur. 

Notkun

  • Spreyið ca. 30cm frá húð
  • Notið stuttar, hraðar hreyfingar - ekki hægar, s-laga hreyfingar
  • Þornar á 10-15 mínútum
  • Hægt að nota hárblásara til að hraða þornun
  • Eftir 3 klukkutíma er spreyið að fullu þornað og hægt að æfa, fara í sturtu, etc.

 

Powder Brush burstinn frá MARC INBANE er förðunarbursti sem er hannaður af förðunarfræðingum sem eru leiðandi á sínu sviði. Burstinn er rúnnaður og með flötum toppi. Notaðu burstann til að blanda brúnkuspreyinu á svæði sem gleymdust eða til að forðast skil, en með honum færðu þétta og fallega áferð. 

Powder Brush burstinn er einnig tilvalinn sem farðabursti, hvort sem er fyrir púður eða kremaðan farða.

Hárin á burstanum hafa verið meðhöndluð þannig að þau eru ekki ofnæmisvaldandi, án allra eiturefna og hafa fengið sérstaka bakteríudrepandi meðferð. Burstinn hentar öllum húðgerðum, jafnvel þeim allra viðkvæmustu. Þessi hágæða handgerði bursti er skyldueign fyrir alla sem er umhugað um förðun og fegurð.

Gleymdist blettur eða spreyjaðiru of miklu? Burstinn hjálpar þér að blanda vörunni til að fjarlægja sjáanleg samskeyti.

Leiðbeiningar til að ná bestum árangri:

Of mikið sprey:
1. Láttu brúnkuspreyið þorna á húðinni í um það bil 10 sekúndur
2. Nuddaðu burstanum með hringlaga hreyfingum fyrir jafna áferð.

Blettur sem gleymdist:
1. Spreyjaðu brúnkuspreyinu beint á burstann
2. Dúmpaðu umfram spreyi á tusku eða bréf
3. Nuddaðu burstanum með hringlaga hreyfingum fyrir jafna áferð.

 

 

Sjá öll smáatriði