Fara í vörulýsingu
1 af 1

My Store

Marc Inbane Tanning Sprey Luxury Beauty Gjafasett

Marc Inbane Tanning Sprey Luxury Beauty Gjafasett

Venjulegt verð 11.000 ISK
Venjulegt verð Sölu verð 11.000 ISK
Útsala Uppselt
Skattur innifalinn

Gjafasett fyrir fallega brúnku. Í settinu er Marc Inbane Tanning Sprey 175 ml og það fylgir frítt með Marc Inbane Powder Brush.

MARC INBANE brúnkuspreyið getur þú auðveldlega borið á þig sjálf/ur og náð fallegri jafnri brúnku. 

Auðveld, heilbrigð og örugg leið til að fá og viðhalda fallegri brúnku allt árið um kring. Þú getur auðveldlega borið á þig sjálf/ur og náð lýtalausri brúnku. Spreyið inniheldur náttúruleg innihaldsefni úr jurtaríkinu svo sem aloe vera og ginko. Spreyið þornar hratt og var hannað þannig að öruggt er að nota það reglulega og það skilar flekkjalausri áferð. Förðunarfræðingar, snyrtifræðingar og hárgreiðslufólk mælir reglulega með MARC INBANE brúnkuspreyinu. 

 

Ábending: Við mælum eindregið með því að nota MARC INBANE örtrefjahanskann eða þar til gerða brúnkuhanska til að bera MARC INBANE brúnkuspreyið á líkamann.  

  • Heilbrigt og hættulaust náttúrulegt brúnkusprey
  • Auðveld að bera það á sig sjálf/ur
  • Þornar fljótt og verður ekki flekkótt
  • Brúnkan endist í allt að 5 daga
  • Hentar öllum húðgerðum og má nota á allan líkamann
  • Ein flaska dugar í ca. 50 skipti fyrir andlit og háls
  • Gefur jafna og fallega áferð - enginn gulrótarlitur
  • Nátturulega nærandi innihaldsefni svo sem aloe vera og ginkgo
  • Engir skaðlegir útfjólubláir geislar frá sól eða ljósebekkjum
  • Prófað af húðlæknum og án parabena 

Powder Brush burstinn frá MARC INBANE er förðunarbursti sem er hannaður af förðunarfræðingum sem eru leiðandi á sínu sviði. Burstinn er rúnnaður og með flötum toppi. Notaðu burstann til að blanda brúnkuspreyinu á svæði sem gleymdust eða til að forðast skil, en með honum færðu þétta og fallega áferð. 

Powder Brush burstinn er einnig tilvalinn sem farðabursti, hvort sem er fyrir púður eða kremaðan farða.

Hárin á burstanum hafa verið meðhöndluð þannig að þau eru ekki ofnæmisvaldandi, án allra eiturefna og hafa fengið sérstaka bakteríudrepandi meðferð. Burstinn hentar öllum húðgerðum, jafnvel þeim allra viðkvæmustu. Þessi hágæða handgerði bursti er skyldueign fyrir alla sem er umhugað um förðun og fegurð.

Gleymdist blettur eða spreyjaðiru of miklu? Burstinn hjálpar þér að blanda vörunni til að fjarlægja sjáanleg samskeyti.

Leiðbeiningar til að ná bestum árangri:

Of mikið sprey:
1. Láttu brúnkuspreyið þorna á húðinni í um það bil 10 sekúndur
2. Nuddaðu burstanum með hringlaga hreyfingum fyrir jafna áferð.

Blettur sem gleymdist:
1. Spreyjaðu brúnkuspreyinu beint á burstann
2. Dúmpaðu umfram spreyi á tusku eða bréf
3. Nuddaðu burstanum með hringlaga hreyfingum fyrir jafna áferð.

Sjá öll smáatriði